04.09.2007 13:51:01 / siggaeva_arni

ný síða

við erum komin með nýja síðu: www.123.is/siggaeva_arni ástæðan er víst sú að það er miklu betra að setja inn myndir þar og eikkað. við settum inn nokkrar myndir af íbúðinni okkar úti...fólk verður endilega að skoða:p Annars er allt gott að frétta af okkur. fórum niðrí bæ í gær að skoða dýnu í rúmið okkar, þessi sem er fyrir er ekki góð og við vorum að spá í að setja bara nýja dýnu ofaná þessa gömlu. Við fundum eina góða en hún kemur ekki fyrr en eftir svona 3-4 vikur :( sem er ekki gott. Erum svo að fara aftur niðrí bæ á eftir að kaupa prótein og skoða boxpúða sem við sáum í gær, ætla sko að hengja upp boxpúða í stofunni ef landlordinn leyfir. fórum svo í fyrsta prófið okkar í gær í ungversku. Fengum bæði 5...sem er btw 10, en það var ekki erfið 10-a. en já kíkið á hina síðuna kveðja Árni

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 19:41:32 / siggaeva_arni

Agalega spes...

Það er nú ekki frásögu færandi að við sváfum út í morgun... en það sem er frásögu færandi er að ég vaknaði við það að Árni sagði við mig "það er einhver í íbúðinni", ég bara hvað meinaru?? Árni fór fram að athuga málið, þá var bara einhver miðaldra kona að vaska upp og taka til í eldhúsinu, e-r kona sem við höfum aldrei séð áður! Hún hafði bara hleypt sér sjálf inn án þess að hringja bjöllunni... greinilega með lykla. Árni vissi ekkert hvað hann átti að gera, heilsaði bara kurteisislega og kom svo aftur inní herbergi.. við vissum ekki alveg hvernig við áttum að snúa okkur í þessu. Við vorum nú samt eiginlega viss um að þetta væri konan sem þreyf hjá stelpunum sem voru í þessari íbúð á undan okkur, en við vorum auðvitað aldrei búin að ráða hana:S

Við sátum lengi inní rúmi að velta fyrir okkur hvernig við gætum losað okkur kurteisislega við þessa elsku og hvað við ættum að borga henni á tímann... þegar við vorum búin að ræða þetta fram og til baka og loksins búin að komast að niðurstöðu þá röltum við fram, neinei, þá var hún bara horfin (með lyklana auðvitað með sér). Núna bíðum við spennt eftir því að hún mæti aftur inná eldhúsgólf til okkar!! :haha:

Það er nú ekki annað hægt en að hlæja að þessu, þótt okkur sé nú ekki sama um að einhver kona útí bæ, sem við vitum ekkert hver er sé með lykla af 

íbúðinni okkar!

Stelpurnar sem voru hérna í íbúðinni á undan okkur eiga eftir að skila okkur sínum lyklum og innheimta lyklana sem eru útí bæ..(sem eru vonandi ekki fleiri;)) vonum að það verði í bráð ;)

Annars er allt fínt að frétta af okkur, fórum í íslendinga-partý í gærkvöldi, þar var svaka stuð, 

spilað á gítar og sungið fram eftir nóttu! Í dag höfum við það svo kósý saman, röltum niðrí bæ, fengum okkur að borða á veitingastað og vorum eitthvað að snúllast, sáum þrenn brjúðhjón á svona klukkutíma, ástin bara lá í loftinu :D

Á morgun leggjumst við  svo yfir ungverskuna því það er próf á mánudaginn, svo annað próf á

föstudaginn og þá eigum við víst að vera útskrifuð í ungversku fyrir næsta árið! Þetta er nú alveg 

rosalegt tungumál;) 

Þið heima, knúsið Goða frá mér, sakna hans svo mikið!

Vonandi hafið þið það öll sem best, heima á klakanum og annarsstaðar :)

 á næstu dögum koma svo vonandi inn myndir af íbúðinni ofl :)

bæó

Sigga Eva 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 16:35:52 / siggaeva_arni

Í Ungverjaland í 36 stiga hita :)

Við komumst nær áfallalaust hingað til Ungverjalands, smá ves á flugvellinum í Danmörku, við vorum komin uppí vél og reddí to go en þá höfðu nokkrar vitlausar töskur komið í okkar vél. Það þurfti að taka allar töskurnar úr vélinni og allir í flugvélinni þurftu að fara út og benda á sínar töskur, klukkutíma seinnkun , gaman að því 8)

 

Við erum hérna í rosalega kósý herbergi á hótelinu, fer vel um okkur en svolítið heitt! 38 stiga hiti það mesta sem ég sá í dag á mæli.. Við förum af hótelinu á morgun og flytjum inní mjög flotta íbúð sem við tökum við að leigja af íslenskum stelpum, flottar svalir, björt íbúð, flísar og parket á öllu, stórar svalir með rólu á og svona :D

 

Hinir emendurnir hérna eru alveg yndislegir, búnir að hjálpa okkur rosalega, labba með okkur um allt, segja okkur hvar við fáum hitt og þetta og sýna okkur hvernig á að kaupa hlutina, þannig þetta lýtur allt vel út og við bara ánægð með þetta! Gátum ekki sofnað í gær og vorum að fíflast hérna með svakalegan svefngalsa og þá fórum við nú að spá í hvað við værum eiginlega að gera hérna, en svona er þetta;) við erum komin út og förum ekki að hætta við úr þessu :)

Fleiri fréttir frá Ungverjalandi síðar

kossar og knús, söknum ykkar heima

Sigga Eva og Árni


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 15:38:48 / siggaeva_arni

leti í gangi

Ég veit að við höfum ekki verið dugleg að blogga, en vonandi breytist það...annars er ekkert merkilegt af okkur að segja nema við erum orðin hundleið á þessari vinnu og getum ekki beðið eftir að hætta, eini bjarti hluturinn sem ég sé við hana er hversu vel er borgað. Ég átti að fara á næturvakt í nótt en ég hringdi mig inn veikan, þannig að Sigga Eva fór bara ein í vinnuna, ótrúlega einmannalegt fyrir mig að vera einn heima og horfa á myndir í tölvunni og sakna hennar Siggu Evu :( ég er alveg ótrúlega tómur að reyna að blogga þannig að ég kveð bara Árni

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:00:31 / siggaeva_arni

Upprennandi læknar á leiðinni til Ungverjalands

Jæja nú erum við búin í prófunum og flutt í Borgarnes og hlutirnir fara nú eitthvað að róast hjá okkur, búið að vera brjálað að gera alveg síðan skólinn hætti!

Erum búin að vera að mála "nýja" herbergið okkar í Borgarnesi og kaupa inn ný húsgögn og allt að verða rosa kósý! Rúlluðum prófunum upp (amk þeim sem við erum búin að fá útúr) og hvað haldiði, komumst bæði inní læknanám í Ungverjalandi. Við erum semsagt á leiðinni núna í haust til Ungverjalands og verðum þar meira og minna í 6 ár hvorki meira né minna (vonandi ;) )

 

Fórum í sauðburð eftir prófin, austur í sveitina og vorum þar  í rúma viku, alveg frábært að komast aðeins heim í sveitasæluna og ég held að Árna hafi fundist það rosa gaman líka :)

 Við byrjum svo að vinna á miðvikudaginn næsta og þá lærir maður að keyra lyftara og e-a deiglubíla, haldiði ekki að maður verði flottur á svoleiðis græju með nokkur tonn af áli í eftirdragi 8)

Er að fara út í labbitúr með hundunum okkar og svo á hestbak á eftir :D

 Sigga Eva

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 18:30:56 / siggaeva_arni

Íshellir á Langjökli


 
Mynd af meirihluta hópsins sem fór saman á Langjökul, það vantar Meistara Ásgeir og Guðmund Finn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 15:50:23 / siggaeva_arni

Hehe

Sigga Eva googlaði ,,giving birth" við erum nebblega alltaf að pæla í barneignum og þetta  fékk hún...verð að setja inn link á myndina hérna:D

www.joe-ks.com/archives_feb2005/WomensDream.htm


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 15:43:17 / siggaeva_arni

Halló Halló

langt síðan ég bloggaði... þannig að ég ætla að bæta úr því

Ég og Sigga Eva mín fórum á Langjökul um þarsíðustu helgi í jeppaferð...þannig að ferðirnar á jökulinn í vetur eru orðnar 3 hvorki meira né minna, en það er svona að vera í skóla og hafa engan tíma;) en já annars eru prófin að byrja, fyrsta núna á mánudaginn ógeðslega lífeðlisfræðin svo er held ég síðasta prófið almenn hjúkrunarfræði þann 14 maí. Sama dag og við klárum þá eigum við flug austur í sauðburð:) komum svo heim 9 dögum síðar og tökum inntökuprófið í lækninn útí Ungverjalandi. Ég og Sigga Eva vorum á lyftaranámskeiði núna í vikunni og erum orðnir svaka trukkar...með réttindi á lyftara og alles8) ekki hægt að toppa það. það er víst æskilegt að fólk sé með solleis til að vinna á Grundartanga

veit ekki hvað ég get bullað meira þannig að ég hætti bara

Árni


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 12:20:53 / siggaeva_arni

Bíllinn seldur og allt í gangi!!

Hvað haldiði, seldi Skodann minn á laugardaginn á þvílíkt góðu verði!! Enda er hann alveg þess virði! Fólkið staðgreiddi hann þannig að það var ekkert ves og svo í vikunni kemst ég úr mínusnum mínum og hver veit nema ég nái að klára önnina í + 8)

Ég, Árni og Goði vorum uppí Borgarnesi um helgina og fórum 2x á hestbak, erum að verða svo mikið hestafólk :haha: Gaman að því!

Í vikunni klárum við svo verknámið okkar, erum búin að vera á Hrafnistu að reyna að hjálpa til við að hugsa um gamla fólkið og það gengur mjög vel held ég!

Ætla nú ekkert að hafa þetta lengra í bili... Árni er í Boot Camp og ég er að reyna að læra hvernig maður á að taka hjartaafrit :)

Nóg í bili

Sigga Eva 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 23:34:02 / siggaeva_arni

Til sölu :)

 

Þessi elska er til sölu á gjafaverði ef einhver hefur áhuga þá endilega hafið samband :haha: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 19:49:03 / siggaeva_arni

Of djúpt fyrir mig...

Andri minn þessi færsla í gestabókinni var of djúp fyrir mig... en ég er að leggja höfuðið í bleiti 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 16:55:07 / siggaeva_arni

Nóg að gera...

Það er nú hálf glatað að vera með bloggsíðu og nenna svo aldrei að blogga.. en svona er þetta þegar maður vill nýta tímann í eitthvað gáfulegt! ótrúlegt hvað sumir nenna að eyða milum tíma í þetta ;)

Ég og hann Árni minn komumst bæði með glæsibrag inní hjúkkuna og erum semsagt í hjúkrun núna og er það alveg ágætt! Ætlum nú samt í inntökupróf í lækninn í vor, amk til Ungverjalands og kannski hérna heima líka. Gaman að sjá hvað kemur út úr því!

Það er allt á milljón í skólanum og bara gaman að því, aðeins líflegra en það var á fyrri önninni! Svo erum við að halda áfram í boot camp og gengur hörku vel, kortið mitt rann reyndar út síðasta föstudag því miður og ég veit ekki alveg hvenær það verður endurnýjað en Árni á nú kort sem endist fram á vor þannig að hann heldur áfram!

Þar síðustu helgi fórum við í sumarbústað heila helgi með Nínu vinkonu og Vidda kærastanum hennar, glæsilegur bústaður sem við fengum á leigu hjá sjúkraliðafélaginu, með risa verönd í kringum allt húsið, gufubaði, heitapott og alveg private :) Við skoðuðum Gullfoss og Geysi og á leiðinni heim fórum ég og Árni á Þingvelli, tími til komin fyrir mig að koma þangað 8)

 


 

 

 

 

Þetta eru myndir af okkur á Þingvöllum og í sumarbústaðnum svona frekar nývöknuð :D 

 

Um síðustu helgi fórum við í veislu á hótel Borg í tilefni af því að afi hans Árna hefði orðið 100 ára ef hann hefði lifað, það var rosalega gaman að fá að hitta þennan hluta af fjölskyldunni hans, veislan var glæsileg 18 réttir og nokkrar auka teg af ís!! Síðan á laugardaginn fórum við á snjósleða uppá Langjökul, og á sunnudaginn á hestbak hjá mömmu hans Árna! Alveg frábær helgi!

Í gær fórum við með Bassa hans Árna á hlýðninámskeið og lofar "krílið" góðu enn sem komið er! Á morgun er litla systir mín hún Silja Dögg að koma í heimsókn í 4 daga þannig að það er alveg að halda áfram að vera fullt að gera hjá okkur sem er bara mjög gott mál :D

jæja ég ætla að fara að læra, hver veit nema maður verði duglegri að blogga í nánustu framtíð eða maður standi sig verr.. aldrei að vita...

Adios

Sigga Eva


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 18:03:45 / siggaeva_arni

Gleðileg jól börnin min :)

Gleðileg jól öll sömul! Ég var nú að upplifa mín bestu jól hingað til og þau hafa nú ekkert verið slæm :D
Árni minn kom með mér austur og Þórður var svo góður að lána okkur íbúðina sína, svo erum við bara búin að hafa það rosalega kósý! Kíktum í lyftingarsalinn með Arnóri bróðir og tókum aðeins á því og fórum svo í sund! Bökuðum sörur, kíktum á kaffihús á Þorláksmessu, ná inn smá jólaanda :) Síðan erum við búin að vera að knúsast, horfa á video, fara út með Goða ofl. Gætum ekki verið búin að hafa það betra!

Og vitiði hvað ástin mín gaf mér... hvorki meira né minna en 18 karata demantshring! Þetta er víst 1sti af 3 sem ég á eftir að fá frá honum ;) Hann er svo ótrúlega flottur ég vissi bara ekki hvert ég ætlaði þegar ég opnaði pakkann! Ég fékk líka sætasta jóla"kort" í heimi með :P

Í gær keyrði ég svo Árna mínum útá flugvöll, hann var að fara suður, var svo að flugeldastússast fram á nótt í gær, meðan að ég fór að sofa fyrir 12 8)
Þannig að ég er alveg ómöguleg hérna heima núna ég sakna hans svooo!!! En þetta verða nú ekki meira en tíu dagar sem betur fer, ég myndi ekki meika lengri tíma :haha:

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. set inn myndir fljótlega!

Vonandi hafiði það öll sem best yfir hátíðarnar!

Jólakveðja
Sigga Eva



» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 16:43:42 / siggaeva_arni

Geðveikt að vera búinn í prófunum...

Loksins kláruðum við þessi próf, tókum þetta sálfræðipróf á tíunni held ég :) próflokunum var svo fagnað á Ölver í glæsibæ með fullt af öðrum hjúkkunemum og svo auðvitað Svanberg sem við hittum í kringlunni fyrr um daginn. við nenntum ekki niðrí bæ þannig að stefnan var tekin á sóðakrána Ákabar í breiðholtinum. Rindillinn sem sagðist eiga staðinn var bara með leiðindi við okkur þannig að við löbbuðum út og Svanberg lét aðeins finna fyrir því hvað hann var reiður útí hann. Svanberg lamdi hann samt ekki sko...en það munaði ekki miklu, ég og Sigga mín þurftum að halda aftur af honum. En já ég mæli sko ekki með að fólk kíki á þessa SÓÐAKRÁ... akkurat andstæðan við það hvernig reka skal fyrirtæki eða sóðabúllu :^)
nóg um þetta í bili
 
kveðja Árni

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 23:28:03 / siggaeva_arni

3 búin 2 eftir

Er búinn með 3 próf núna og á svo efnafræði og sálfræði eftir. En eitt skil ég ekki... ég hélt að þegar maður færi í háskóla að þá yrði allt svo erfitt í sambandi við námið, neinei það var sko algjör vitleysa. Hef ekki lært staf í bók alla önnina og er svo að ganga mjög vel í þessum lokaprófum og Siggu Evu minni líka, sem er líka bara frábært því þá hefur maður ekki eins mikið samviskubit yfir því að hafa kysst og knúsað hana Siggu Evu mína í allan vetur :* en já við höfum ekki mikið gert annað núna í próftíðinni en lært stundum alveg til 5 á nóttunni8| sem er nottla bara vitleysa...

Svo þarf ég að fara að heilsa uppá hann Gunnar Smára minn ;) hef ekkert séð þig kallinn minn í allan vetur, hefði svo þurft að hafa einhvern til þess að fara með mér á klósettið í vetur.

jæja fara að læra...

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill